Lesson
Þetta kennsluefni býður börnum upp á röð skemmtilegra verkefna til þess að hjálpa þeim við að finna og útskýra hættur og áhættur í umhverfinu bæði í skólanum og heima fyrir. Það býður börnum upp á leiðir til þess að þróa skilning á eigin ábyrgð í tengslum við áhættur og hættur og leggja mat á mismunandi áhættustig (mikil eða lítil áhætta).
Námsmarkmið
2. kennslustund - Hættuveiðimaðurinn Napo: afleiðingar og forvarnir
Að þekkja hvernig takast má á við fjölbreyttar hættur sem gætu skapað áhættu fyrir mig eða aðra
Að skilja eigin ábyrgð í tengslum við hættur og áhættur
Að leggja mat á mismunandi áhættustig
Að vinna sem hópur við áhættumat og greiningar
Upphaf
5 mínútur
Sýnið fyrsta atriðið úr Napo myndinni „Örugg byrjun – gættu annarra líka“
sem fylgir þessari kennslustund
- Af hverju ættum við að fyrirbyggja hættur sem snúa að okkur sjálfum og öðrum?
- Hvernig getum við fyrirbyggt slys þegar við sjáum hættulegar aðstæður?
Starfsemi
40/45 mínútur
Veiddu hættuna Sýnið Napo stikluna sem fylgir þessari kennslustund: Hættugreining Napos - afleiðingar og forvarnir
Myndin: Örugg byrjun: Atriði: Gættu annarra líka
Myndin: Hættuleg viðskipti: Atriði: Bregðast við hættum
- Ræðið og skilgreinið hætturnar í atriðunum og hvers kyns áhættur nemendur eru meðvitaðir um. Hvetjið börnin til þess að útskýra hvað þau myndu gera til þess að koma í veg fyrir hættur og áhættur.
- Ræðið hvernig sumar hættur eru hættulegri en aðrar með því að búa til lista yfir hættulegustu hætturnar. Spyrjið börnin hvaða hættum sé mikilvægast að bregðast strax við. (Sjá fylgiblað).
- Búið til lag, dans eða stutt leikrit til þess að hjálpa fólki við að muna hvernig það getur varið sjálft sig og aðra gegn hættum.
Aukaverkefni
- Kynning/umræður um fj ölbreytni hætta sem kunna að verða á vegi okkar á grundvelli valinna Napo myndstikla (vegaslys, rafmagn, skrikun fótar og hrösun, fall úr hæð – t.d. úr stiga, kemísk efni, hávaði o.fl .).
- Umræður um umönnun annarra, hvernig er hægt að fyrirbyggja að þeir verði fyrir slysum (forðast áhættur, upplýsa aðra um nýjar áhættur sem hafa greinst).
- Umræður um hvernig eigi að bregðast við áhættum á grundvelli valinna Napo myndstikla.
- Hópastarf af ýmsu tagi t.d. verkefnin sem talin eru upp á næstu síðu.
Listi yfi r hugsanlegar Napo stiklur fyrir aukaverkefni má fi nna hér:
mat
Í lok kennslustundarinnar geta börnin búið til lag, rapp eða rím sem dregur efnið saman og segir hvað þau hafa lært um hættuveiðar.
Kennarar og nemendur meta kunnáttuna með því að nota þetta kerfi:
- Gull: Ég get útskýrt að minnsta kosti þrjár gerðir af hættum og áhættum fyrir sjálfum mér og öðrum. Ég get lagt mat á áhættuna og bent á afl eiðingar á heilsu okkar, hvaða aðgerðir ætti að grípa til í hverju tilviki til að draga úr áhættu.
- Silfur: Ég get útskýrt hættu og áhættu (fyrir sjálfum mér og öðrum) heima hjá mér og í bekknum. Ég get greint hvað eigi að gera í báðum tilvikum og útskýrt það með skýrum hætti.
- Brons: Ég get útskýrt hvað áhætta er og greint hvað eigi að gera.
Hlekkir á greinar/námsskrá
Persónuleg, félagsleg og heilbrigðiskennsla
Heimilisvörur eins og t.d. lyf geta verið varasamar ef þær eru ekki notaðar á réttan hátt
Reglur um leiðir til þess að finnast að maður sé öruggur, líka öryggistilfinning utanhúss, einnig um fólk sem getur hjálpað til við að auka öryggi okkar.
Að átta sig á því hvernig hegðun þeirra getur haft áhrif á annað fólk
Vísindi
Að vita að hættur leynast í lifandi hlutum, kemískum efnum og líkamlegri hreyfingu. Að leggja mat á áhættur og grípa til aðgerða til þess að draga úr áhættum fyrir þau sjálf og aðra
Nemendur ættu að fá innsýn í notkun kemískra efna heima fyrir, merkingar þeirra og meðhöndlun
Meðhöndlun náttúrulegra efna og gerviefna
Fræðsla um almenna hegðun
Að átta sig á hættum, leggja mat áhættur sem af þeim leiða
Tungumál/móðurmál
Búa til einfaldar setningar til þess að semja sögu með uppbygginguna upphaf, miðja og endir.
Nauðsynleg gögn
- Límmiðar
- Tambúrína fyrir rapp (valkvætt)
- Fylgiblöð fyrir kennara: Íhlutun og forvarnir
- veggspjald fyrir hættugreiningu (með lausnum)
- Hópastarf: Hættu-hús Napo
- Hættuveiðar/-greining – skýrsla
- Go to video
Til þess að hlaða niður úrræðunum sem fylgja með, farið þá á: Efnissafn
Hala niður
