Skip to main content

Napo sagan

Uppruni Napo

Napo er upprunaleg hugmynd lítils hóps OSH samskiptasérfræðinga, sem var ætlað að uppfylla þörfina á betri gæðum upplýsingavara til að rjúfa múra milli landa og taka tillit til margbreytilegra menningarheima, tungumála og hagnýtra þarfa starfandi fólks. Kvikmyndirnar eru ekki hannaðar til að veita tæmandi umfjöllun um efnið, né ætti að líta á þær sem þjálfunar- eða kennslumyndir. Hlutverk Napo og vina hans er að vera forsmekkurinn að OSH með viðfelldnum persónum, skemmtilegum söguþráðum og gamansamri og léttlyndri nálgun. "Öryggi með bros á vör" er framlag Napo til öruggari, heilbrigðari og betri vinnustaða. 

Bakgrunnur

Napo kvikmyndahópurinn þróaðist út frá Vinnuverndarári Evrópu 1992/3 og evrópsku kvikmyndahátíðunum sem Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stóð fyrir.

Hópurinn studdi kvikmyndahátíðir í þeirri trú að það væri mögulegt að finna og aðlaga bestu myndirnar svo hægt væri að nota þær um allt Evrópusambandið. Það reyndist vera erfitt. Margar myndir voru gerðar af kvikmyndaframleiðslufyrirtækjum sem vildu ekki gefa eftir réttindi sín. Menningarlegur munur olli því að myndir, söguþráður og „útlit og tilfinning“ myndanna gerði það erfitt að aðlaga þær og flytja yfir landamæri.

Eftir kvikmyndahátíðina í Strasbourg 1995, hittust fjórir virkir samskiptasérfræðingar frá Frakklandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi til að ræða hvernig hægt væri að panta og framleiða kvikmyndir sem hægt væri að nota um alla Evrópu.  

Napo samtökin hafa verið skipuð nokkrum stofnunum frá því að þeim var hleypt af stokkunum og í lok ársins 2025 samanstóðu þau af eftirtöldum aðilum: AUVA (Austurríki), DGUV (Þýskalandi), EU-OSHA (Bilbao, Spáni), INAIL (Ítalíu) og TNO (Hollandi).

Sköpunarhópurinn

Napo kvikmyndir eru framleiddar af Via Storia.

Fæðing Napo

Hópurinn setti saman tillögu, ítarlega útlistun og útboðslýsingu til framleiðslu á myndbandi um öryggismerkingar og fann tvö framleiðslufyrirtæki frá sínu eigin landi sem boðið var að setja fram úrvinnslu. Via Storia, franskt fyrirtæki frá Strasbourg, fékk samninginn. Napo var fæddur!

Fyrsta myndbandið, Sagan um bestu merkin, var sýnd á kvikmyndahátíð ESB í Edinburgh árið 1998, og vann til verðlauna á alheimsþinginu í Sao Paulo árið 1999, og á kvikmyndahátíðum á landsvísu í Frakklandi og Þýskalandi.

Árið 2003, lýsti Vinnuverndarstofnun Evrópu í Bilbao áhuga sínum á þriðja myndbandinu til að styðja við Evrópsku vikuna og þema hennar sem snerist um hættuleg efni. Samningar náðust við samtökin að veita stofnuninni leyfi til að veita öllum aðildarríkjum, umsóknar- og EFTA ríkjum, frumeintök með skýrum einkaréttar-, réttinda- og kostnaðarákvæðum. 

Í lok árs 2025 var samtökin leyst upp og Napo kvikmyndirnar sem þá voru til eru enn aðgengilegar almenningi. Via Storia heldur sköpunarrétti Napo, ef nýjar kvikmyndir verða framleiddar í framtíðinni. EU-OSHA er áfram eigandi Napo vefsíðunnar og Napo YouTube rásarinnar.